25.4.2007 | 16:04
Fréttatilkynning.........
Ég einfaldlega verð að koma með eina stutta...
Eins og allir vita heima á Íslandi þá er heimsmeistaramótið í Krikket í gangi, eða kannski ekki. Allavega þá er mótið í fullum gangi og Sri Lanka er að gera góða hluti og já ég er kominn inn í Krikket reglur, ég bjóst aldrei við að ég myndi horfa á Krikket og hvað þá að vera spenntur yfir því, en svo var tekið matarhlé og ég var ekki spenntur lengur algjör snilld.
Sri Lanka er sem sagt komið í úrslitaleikinn eftir að hafa unnið Nýja Sjáland nokkuð örugglega í undanúrslitaleiknum sem að var í gær og þeir munu mæta, tja líklega Áströlum sem eru þessa stundina að valta yfir Suður Afríku sýnist mér. Það er náttúrlega allt á öðrum endanum hérna vegna gengis heimamanna en það sem að mér fannst skemmtilegast við þetta allt það var frétt í einu blaðinu hérna, þetta var nokkurs konar fréttatilkynning frá Tígrunum, og hún var svona.
Þann 24 apríl er Sri Lanka að keppa við Nýja Sjáland í undanúrslitum á heimsmeistaramótinu í Krikket, að þessu tilefni og vegna þess að við verðum allir að horfa á leikinn, þá munum við ekki ráðast á stjórnarhermenn á þessum degi.
Þetta er kannski ekki alveg bein þýðing en þetta var innihaldið, segiði svo að íþróttir stöðvi ekki stríð, mér finnst þetta vera algjör snilld...
Búið í bili. Kv. J
Um bloggið
Jennafréttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
kvitt kvitt
Steinunn E (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 17:16
Á dauða mínum átti ég von en ekki færslum með svona stuttu millibili. Kveðja af klakanum. G.Fylk
G.Fylkis (IP-tala skráð) 25.4.2007 kl. 22:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.